04.12.2011 21:16
Hvernig er hugur þinn ...........?
Kæru skólasystkin!
Nú er aðventan byrjuð með tilheyrandi undirbúningi fyrir jólahátíðina. Fólk dæsir yfir því hvað frídagarnir séu fáir og það verði hreinlega engin jól í ár, sérstaklega ekki heldur í ljósi þess slæma ástands sem er í efnahagsmálum þjóðarinnar ........... eða hvað. Um daginn föðmuðu félagar mínir í Svíþjóð mig innilega á vinnufundi í Kaupmannahöfn og vottuðu mér næstum samúð sína yfir þessu ástandi á Íslandi. Þegar ég hafði sagt þeim frá þeim innilegu móttökum sem verslunarkeðja þeirra Lindex hafði fengið hjá okkur, létti á faðmlaginu og sorgasvipnum og ég varð óviss um hvort þeir væru að gleðjast í sér eða hætta að votta mér samúð sína. Allt í einu fannst mér eins og ég stæði einn á gólfinu ........ Eftir að mér hugkvæmdist að þakka þeim fyrir þessa kærkomnu verslun og frábæru föt á viðráðanlegu verði, datt ég aftur inn í hópinn (snilld).
Svipað á við um veðrið sem að undanförnu hefur hegðað sér svo óútreiknalega að við könnumst ekki við aðrar eins uppákomur. Starfsfélagi minn segir gjarnan: "það er alltaf veður Halldór, en ef þér líkar það ekki, þarftu að breyta um hugarfar"! Með þessi orð í huga fór ég vestur í Dali fyrir 3 vikum síðan til að huga að rjúpu upp á Tröllatunguheiði. Þegar kom að Gilsfirði var veðurhamurinn slíkur að ekki sá í veginn fyrir sjógangi. Jákvæður í huga hélt ég áfram, gegnum sjóskaflana, yfir Króksfjarðarnesið og upp á heiði. Ég svipti upp bílhurðinni og stökk út í veðrið. Þrátt fyrir jákvætt hugarfar, fauk ég eins og fis eftir veginum og endaði (sem betur fer) ofan í snjófylltu gili. Þarna var mun lygnara og þar sem ég var ennþá jákvæður, klóraði ég mig tilbaka upp eftir árfarveginum og fram fyrir bílinn. Þegar upp á veginn kom, var vindurinn jafnsterkur og áður (enda ég jafnléttur) og feiktist ég eftir veginum að bílnum. Eftir að ég náði að þrengja mér um hurðarfalsið og aftur inn í bílinn var ég ennþá jákvæður og sagði "tær snilld" og ákvað að snúa aftur til byggða.
Eftir á að hyggja hafði ég enga stjórn á veðrinu, heldur eingögnu huga mínum og afstöðu minni til þeirra aðstæðna sem ég var í. En með þessar dæmisögur í huga getum við þrátt fyrir efnahagsástandið í þjóðfélaginu og veðrið í landinu haldið ótrauð áfram að undirbúa komu jólanna til að minnast fæðingu Frelsarans. Það er á þessum tíma sem við getum með jákvæðu hugarfari breytt kringumstæðum okkar úr vonleysi í bjartsýni, þó svo að umhverfið mæli því mót. Frídagar jólanna eru fáir og því þurfum við að nýta hverja stund til hins ítrasta, þó svo hún fari fram í snjófylltu gili ......................
Þessum orðum mínum til staðfestingar ætla ég að vitna í tvö ljóð Benedikts Sveinbj. Gröndal úr kvæði hans: "Mér kenndi"!
Mér kenndi faðir
mál að vanda,
lærði hann mig,
þó ég latur væri;
þaðan er mér kominn
kraftur orða,
meginkynngi
og mynda gnótt.
Mér kenndi móðir
mitt að geyma
hjarta trútt
þó heimur brygðist;
þaðan er mér kominn
kraftur vináttu,
ástin ótrauða,
sem mér aldrei deyr.
Kæru skólasystkin!
Ég óska ykkur gleðilegra jóla, farsæls komandi árs og þakka ykkur dýrmætar samverustundir!

Skrifað af HJjr
Flettingar í dag: 302
Gestir í dag: 88
Flettingar í gær: 87
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 215106
Samtals gestir: 38926
Tölur uppfærðar: 24.12.2024 19:15:55
clockhere